Bankatenging við Landsbankann
Uppfært 7. ágúst 2026
Tengdu bankann þinn við Bóka, það tekur aðeins örfáar mínútur. Eftir tengingu sér Bóki um að sækja allar banka- og kortafærslur fyrirtækisins og afstemmir þær sjálfvirkt.
- 1
Skráðu þig inn í heimabankanum þínum
Opnaðu fyrirtækjabanka Landsbankans og skráðu þig inn á því fyrirtæki sem þú vilt tengjast. Athugaðu að prókúruhafi þarf að stofna kerfisaðganginn.
Farðu í Aðgangsstýring → Kerfisaðgangar og ýttu á takkann „Stofna nýjan kerfisaðgang".

- 2
Gefðu aðganginum heiti og lýsingu
Sláðu inn heiti og lýsingu og smelltu á „Stofna kerfisaðgang".

- 3
Þjónustur sem Bóki les
Hakaðu við Greiðslukort og Bankareikningar og smelltu á „Áfram".
Aðgangurinn veitir Bóka eingöngu heimild til þess að lesa korta- og bankahreyfingar.

- 4
Tengja skilríki Bóka
Veldu „Tengja önnur búnaðarskilríki" og smelltu á „Áfram".

- 5
Sláðu inn kennitölu Bóka
Skráðu kennitöluna
6907250530í reitinn og smelltu á „Staðfesta".
- 6
Veittu skoðunarheimild á alla bankareikningana
Opnaðu kerfisaðganginn sem þú varst að stofna. Ýttu á takkann lengst til hægri og smelltu á „Nánar um kerfisaðgang".

Farðu á flipann Bankareikningar og smelltu á „Breyta aðgangsheimildum".

Veldu Skoðunarheimild á öllum bankareikningum fyrirtækisins og smelltu á „Staðfesta".

- 7
Sæktu API-lykilinn fyrir kortin
Opnaðu kerfisaðganginn sem þú varst að stofna, smelltu á takkann lengst til hægri og svo á „Sýna API-lykil".

Afritaðu API-lykilinn og vistaðu hann í Bóka.

- 8
Sæktu notandanafn og lykilorð fyrir bankahreyfingar
Farðu í Skjöl → Yfirlit í netbankanum og opnaðu skjalið „Veflykill - Landsbankinn". Þar er notandanafnið og lykilorðið sem Bóki notar til að sækja bankahreyfingarnar.

- 9
Skráðu gildin í Bóka
Opnaðu Banki í Bóka, veldu Landsbankann og sláðu inn notandanafnið, lykilorðið og API-lykilinn. Bóki sækir þá allar korta- og bankahreyfingar og stemmir af banka og kort fyrirtækisins sjálfvirkt.
Þarftu aðstoð?
Bókarar Bóka hjálpa þér að tengja — sendu okkur línu á boki@boki.is eða opnaðu spjallið inni í Bóka.